Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011
28.11.2011 | 00:00
Af hverju rígheldur Ríkisstjórnin saman?
Sælir bloggarar.
Miklar hræringar eru núna hjá stjórnarflokkunum þessa dagana.
Mörg mál koma upp þar sem stjórnarflokkarnir eru ósammála. Jóhanna segir að stjórnin hafi níu líf eins og kötturinn, en ég held eins og sumir að hún sé nú þegar búin með sín níu líf.
Þá er spurningin hvað er það sem heldur stjórninni saman?
Hjá Samfylkingunni er það auðvitað umsóknin um ESB og að það sé óheppilegur tími til að fara núna í kosningar, þar sem flokkurinn myndi örrugglega tapa fylgi.
Hjá VG er það líka það að þeim finnst það óheppilegur tími til að fara í kosningar þar sem þeir munu líka eins og Samfylgingin tapa fylgi, síðan held ég að önnur skýring hjá þeim sé sú að þetta er í fyrsta skipti sem þeir eru við stjórn síðan flokkurinn var stofnaður og þeir vilji hafa áfrif á þjóðmálin þar sem þeir eru t.d. á móti stóryðju og vilja aukna skatta á hátekjufólk, sem ég persónulega er ekki mótfallinn.
En er einhver hugsanlegur leikur hjá þeim úr stöðunni? Fáir kostir eru hjá VG, nema helst Hreyfingin og Framsókn en held að það dugi ekki til meirihluta. En hjá Samfylkingunni? Þeir gætu reynt að kanna málin hjá Sjálfstæðisflokknum, en þar mundi ESB málið verða erfitt. Hugsanlega væri hægt að hægja á því eða gera hlé á því í bili, eins og Sjálfstæðisflokkurinn vill og einbeita sér að innanlands málum, sérstaklega að atvinnumálum. Okkur vantar fjárfestingar og að starta atvinnumálunum og koma framkvæmdum í gang t.d. í vegagerð.
En málið er að ég hugsa að Sjálfstæðisflokkurinn vilji hafa kosningar sem fyrst t.d. með vorinu, en Samfylkingin mundi helst hafa þær sem næst 2013, þegar þær verða.
Við verðum að bíða og sjá hvað verður. Líklega heldur stjórnin t.d. með því að reka Jón Bjarnason úr ríkisstjórn og mundi Samfylkingin sætta sig við það sem hefnd fyrir það sem Ögmundur gerði í vikunni vegna landakaupa Huang.
Læt þetta nægja í bili.
kv. Hörður.
Alltaf má fá annað föruneyti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.11.2011 | 17:29
Flott hjá þér Kristján L Möller!!! Kolefnisgjaldið fallið um sjálft sig.
Sælir bloggarar.
Ummæli Kristjáns L Möller eftir fund í atvinnuveganefnd í morgun gerir okkur bjartsýn á að kannski verði eitthvað fjárfest hér í framtíðinni. Hann segir að kolefnisgjaldið sé fallið um sjálft sig og ekki verði skattlagt umfram það sem gert er í Evrópu og í ESB löndum.
Flott hjá þér Kristján!!! Nú er að láta VG heyra það og best væri að slíta stjórnarsamstarfið núna.
kv. Hörður.
Gjaldið fallið um sjálft sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2011 | 17:15
Mun Ögmundur banna Svissneska fjárfestingafélaginu að byggja Hotel við hlið Hörpu?
Sælir aftur bloggarar.
Vegna skrifa minna að Ögmundur vilji banna alla erlenda fjárfestingu, þá fór ég að glugga í eldri skrif mín hér í blogginu og þá kemur upp í hugann hvort Ögmundur mundi banna Svissneska fjárfestingafélaginu að byggja Hotel við hlið Hörpu, en samningar eru við þetta félag.
Eins og við vitum þá eiga Ríkið og Reykjavíkurborg Hörpu, þannig að ef Ögmundur vildi blanda sér í það, þá væri það hægur vandi, að vísu er Harpa á vegum Katrínu Jakopsdóttir menntamálaráðherra, en maður bíður eftir næsta leik Ögmundar.
kv. Hörður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2011 | 16:01
Huang hættur við og snýr sér til Finnlands og Svíþjóðar.
Sælir bloggarar.
Nú segir Huang að hann sé hættur við að reyna að fjárfesta hér á landi. Enda mun Ögmundur ekki skipta um skoðun. Hann ætlar að snúa sér til Finnlands og Svíþjóðar.
Ég held að Ögmundur vilji loka landinu fyrir öllum erlendum fjárfestum og vilji að landið verði eins og eitt land í Asíu.........
Og hvaða land er það? Þið getið giskað á það..........
Jú það er Norður Kórea.!!!!! Sem er einangrað land.
Spurningin er þá sú vill Ögmundur loka landinu???????????????
Eða á ég að umorða spurninguna, vill VG loka landinu t.d. með því að hræða alla erlenda fjárfesta frá að koma til landsins. t.d. með kolefnisskattinum.
kv. Hörður.
Huang snýr sér til Finnlands og Svíþjóðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.11.2011 | 20:14
Ögmundur vill banna alla erlenda fjárfestingu hér á landi.
Sælir bloggarar.
Í framhaldi af síðustu grein, þá var ég að hlusta á Kastljós þar sem kom fram álit Ögmundar að hann vildi helst banna alla erlenda fjárfestingu hér á landi. Þessu er ég ósammála, þetta er alger fáránlegkt, þar sem okkur vantar atvinnu og fjárfestingar eftir hrunið.
kv. Hörður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2011 | 18:47
Samfylkingin á að slíta stjórnarsamstarfinu nú þegar.
Sælir bloggarar.
Já nú er mælirinn fullur. Nú á Jóhanna að slíta strax stjórnasamstarfinu bæði vegna þess að VG ætla að setja kolefnisgjald á fyrirtæki en þó mest vegna þess að Ögmundur hafnar uppbyggingu á ferðaþjónustu til kínverjans Huang á Hoteli og gólfvöll á Grímstöðum á Fjöllum.
Það er sama hver erlendur maður eða fyrirtæki kemur til Íslands með einhverja peninga og vill hugsanlega fjárfesta hér á landi, allt er rekið til baka og VG virðist halda að allir útlendingar sem hér koma séu ótíndir glæpamenn.
Ég segi bara skammist ykkur VG.!!!!
Jóhanna nú er mælirinn fullur og slíttu stjórnarsamstarfinu.!!!!!!!
kv. Hörður.
Vekur spurningar um samstarfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.11.2011 | 20:27
Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Reykjavík til Selfoss.
Sælir bloggarar.
Ég var að skoða nýjan vef www.betraisland.is þar sem frumvörp og þingsályktunartillögur eru og getur fólk stutt mál eða verið á móti. einnig getur fólk komið með ný mál á dagskrá og vildi ég láta ykkur vita að ég gerði það.
Málið sem ég hef áhuga á er Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Reykjavík til Selfoss. Rök mín eru þau að það ætti að byrja á þessu sem fyrst og til að fjármagna það er að semja við Lífeyrissjóði að lána Ríkinu fé til cirka 25 til 30 ára. Þannig ætti að vera hægt að komast áfram með þetta mál.
kv. Hörður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.11.2011 | 22:40
Samanburður á Magna og kínverjanum Huang.
Sælir bloggarar.
Vegna skrifa minnar í síðustu grein, hefur orðið heilmikil umræða í athugasemdum hjá mér, þar sem menn hafa verið alltof heitt í hamsi og verið með ókurteisir, þannig að ég varð að eyða skrifunum, vil ég í þessarri grein gera smá samanburð á hvernig kanadíska fyrirtækið Magna kom hér inn og á framkvæmdamanninum og ferðafrömuðinum kínverjanum Huang.
Þegar Magna kom hér inn og keypti HS Orku þá gerði hann það í gegnum sænskt skúffufyrirtæki og þetta var náttúrulega orkuauðlind Íslendingar, en það sem kínverjinn Huang ætlar að gera er að koma til dyranna eins og hann er án þess að nota skúffufyrirtæki og án þess að taka auðlindir okkar. Það sem hann ætlar að gera er að hjálpa okkur að byggja upp ferðaiðnaðinn með því að kaupa land á Grímstöðum á Fjöllum og byggja þar Hotel og gólfvöll.
Ég sé ekki við hvað sumt fólk þarf að vera hrætt við það, einmitt þar sem hann sjálfur hefur sagt að hann sé ekki á höttunum eftir vatnsréttindum.
Vona að þetta skýri út muninn á Magna og Huang.
kv. Hörður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2011 | 00:06
Ögmundur kominn aftur til kalda stríðsins og nú er það Kínagrílan.
Sælir bloggarar.
Enn og aftur kemur Ögmundur fram á sjónarhólið og nú er það Kínagrílan allsráðandi og hann kominn aftur til kalda stríðsins, þar sem menn sáu óvini allstaðar. Við lifum á allt öðrum tímum í dag og við eigum ekki í stríði við Kína, ekki svo ég viti til. En Ögmundur heldur það allavega.
Ef við eigum að fá fjáfestingar inn í landið þá verðum við að láta pólitík og kalda stríðs hugsunarhátt út um gluggann og taka fagnandi ef einhver vill fjárfesta hér á landi, ekki veitir af.
En að sjálfsögðu verðum við að fara varlega og að lögum og allir verða að vera jafnir, hvort sem er Dani, Rússi, Þjóðverji eða Kínverji.
Það hlýtur að vera hægt að semja við Huang alveg eins og alla aðra t.d. að hann afsali sér öll vatnsréttindi eins og hann hefur sjálfur sagt og eins er hægt að semja við hann um hlutfall Íslenskra mannafla á framkvæmdatíma og líka hve hátt % Íslendingar eiga að fá vinnu á Hotelinu þegar það verður fullbyggt.
Ef menn hætta að vera í þessum Pólitíska sandkassaleik, þá er hægt að semja.
kv. Hörður.
Olnbogar sig ekki áfram á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
10.11.2011 | 22:47
Svissneska fjárfestingafélag fær að reisa Hotel, en hvað með Kínverjann? Fær hann að reisa Hotel á Grímstöðum á Fjöllum?
Sælir bloggarar.
Ég var að lesa þessa frétt að viðræður við Svissneska fjárfestingafélagið World Leisure Investment um að byggja lúxushótel við hlið Hörpu gangi vel og jafnvel stefnt að því að skrifa undir samning fyrir áramót.
Það er gott og blessað að fá meiri fjárfestingu inn í landið, en hvað með Kínverjann (man ekki hvað hann heitir) sem ætlar að byrja að byggja Hotel á Grímstöðum á Fjöllum ef hann fær leyfi til að kaupa landið? Er það ekki líka fjárfesting sem skilar sér inn í landið okkar líka? Ég sé ekki mun á því hvort erlendi fjárfestirinn er Kínverji, Frakki, Þjóðverji eða Dani, ef allir fari að lögum og við getum grætt á því. Þeir sem halda því fram að Kínverji megi ekki reisa Hotel hér en bara aðrar þjóðir mundi ég kalla rasista.
kv. Hörður.
Telja hótel handan við hornið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Maí 2008
- Apríl 2008
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Bloggvinir
- agustolafur
- astar
- dofri
- gattin
- gudbjorng
- gummisteingrims
- heiddal
- helgi-sigmunds
- hlf
- holmfridurpetursdottir
- hrannarb
- jensgud
- johanneshlatur
- joningic
- jonsnae
- kjarri
- kristjanmoller
- lara
- ollana
- possi
- prakkarinn
- presleifur
- rabelai
- reykur
- stingi
- thorarinneyfjord
- vga
- skagstrendingur
- blaskjar
- hallgrimurgisla
- harhar33
- snjolfur
- stjornuskodun
- meyerinn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar