Leita í fréttum mbl.is

Víkingar í Hafnarfirði.

Sælir Bloggarar.

Jæja nú eru Víkingarnir komnir aftur til að taka yfir Hafnarfjörð í nokkra daga.

Þetta er orðinn árlegur viðburður og skemmtileg viðbót í menninguna hérna í norður hjara veraldar.

Ég sá nokkur bardagaatriði í fréttunum í kvöld og sýndist það vera nokkuð áhrifamikið.

Eins var sýnt brúðkaup að fornra siða.

Hafnarfjörður er orðinn einn af þekktari bæjum á Norðurlöndum sem eru með svona sýningu árlega.

Hérna koma Víkingar hvaðan æva frá Norðurlöndunum og jafnvel víðar.

Vona að það verði sýnt meira frá þeim í fréttum, en fólk getur komið og horft á sýningu þeirra næstu daga.

Læt þetta nægja.

Kveðja, Hörður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Þetta er aldeilis frábært uppátæki hjá Jóa,  vini mínum,  í Fjörukránni.  þegar synir mínir voru börn og við fórum á Víkingahátíð í Fjörukránni kviknaði hjá þeim áhugi á uppruna sínum.  Þeir fóru að lesa Íslendingasögur.  Sagan varð þeim ljóslifandi og fékk ævintýraljóma.  Í dag eru synir mínir fullorðnir menn sem kunna Íslendingasöguna utanað.  Þökk sé Víkingahátíðinni í Fjörukránni.

Jens Guð, 10.6.2007 kl. 01:14

2 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Hefði viljað vera uppi á Víkingaöld,þá þýddi ekkert að vera einhver bleyða,onei,menn þurftu að geta svarað fyrir sig varið sig og ýmislegt, einnig eru siðir víkinga nokkuð sem gaman væri að vera vitni að,og ekki skemmir að fá víkingahátíð í Hafnarfjörðinn í Fjörukrána,þökk sé Jóa.

Magnús Paul Korntop, 10.6.2007 kl. 04:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hörður Jónasson
Hörður Jónasson

Höfundur býr í Reykjavík.

Áhugamál höfundar er t.d. ýmis dægurmál s.s. stjórnmál, íþróttir, samgöngumál og kvikmyndir.  Höfundur heldur með Arsenal.

Netfang: hordurj@simnet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband